Dufþakur - TLC
1 - 0 ( 0 - 0 )
21. júlí 2001 16:15 - Bikarkeppni - Ásvellir
![]()
|
Leikmannahópur Dufþaks Birgir Stefánsson Friðrik E. Jónsson Gestur Magnússon Halldór V. Jakobsson Héðinn Þorsteinsson Heiðar Kristinsson Jóhannes Númason Magni Þórðarson Magnús Sandholt Ómar Smárason Sigurður Ólafsson Símon Jakobsson Þorkell Guðbrandsson |
Mörk Keli 1 |
|
Umfjöllun Aðeins 11 leikmenn voru mættir þegar leikurinn hófst en þeim fjölgaði um tvo eftir að hann hófst. Enn og aftur segja sumarfríin til sín,margir voru að koma beint úr sumarbústað og útlegu. Strax á fyrstu mínútu sást að leikmenn Duffa hefðu notað helgina vel og hvílt sig vel fyrir þennan bikarleik enda allt lagt undir. Duffi pressaði strax frá upphafi og náðu TLC aldrei að byggja upp spil en Frikki og Heiðar voru duglegir að elta uppi varnarmenn andstæðingana og gátu þeir ekkert annað en að hreinsa útaf, einnig þegar boltinn vannst framarlega var alltaf hætta og bjargaði markvörður TLC oft vel, staðan í hálfleik var 0-0. Leikmenn Duffa héldu sömu pressunni í seinni hálfleik en illa gékk að nota færin. Það var ekki fyrr en um miðjan seinni háleikinn sem Keli aukaspyrnu sérfræðingur skoraði glæsilegt mark, algerlega óverjandi og varð það markið sem skildi á milli þrátt fyrir nokkur sæmileg færi eftir það. Jói átti fínan leik og greip vel inní og gerði vel þegar hann varði maður á móti manni en það var í raun eina færi TLC í leiknum, Frikki gerði varnarmönnum TLC erfitt fyrir allan leikinn og á hrós skilið sem og allt liðið. |
![]()