Dufþakur - TLC
1 - 3 ( 0 - 1 )
4. júlí 2001 20:45 - Deildarkeppni - Ásvellir
![]()
|
Leikmannahópur Dufþaks Arnsteinn Ingi Jóhannesson Birgir Haraldsson Birgir Stefánsson Einar Oddberg Hafsteinsson Gestur Magnússon Halldór V. Jakobsson Héðinn Þorsteinsson Heiðar Kristinsson Jóhannes Númason Ómar Smárason Sigurjón Ragnar Sigurjónsson Símon Jakobsson Þorkell Guðbrandsson Viktor Edvardsson |
Mörk Addi 1 Stoðsendingar Beggi 1 Gul spjöld Dóri 1 |
|
Umfjöllun Óhætt er að segja að þetta hafi verið lélegasti leikur Dufþaks í sumar. Það vantaði alla baráttu og áhuga, andstæðingarnir spiluðu fast og nokkuð um gróf brot og sló það Duffa leikmenn nokkuð útaf laginu og fór full mikill tími í að röfla í dómaranum. Um miðjan fyrri hálfleik komst TLC yfir eftir skot, beint úr aukaspyrnu sem hafði verið dæmd rétt fyrir utan vítateig og staðan í hálfleik 1-0. Seinni hálfleikur var svipaður og fyrri TLC bætti við öðru marki sínu en Addi minnkaði muninn skömmu seinna. Undir lok leiksins var eins og það kviknaði loksins smá neisti, Addi átti skot í stöng, Keli þrumuskot af löngu færi í slá og Gestur átti skalla og skot rétt framhjá, hvoru tveggja eftir góðan undirbúning hjá Viktori. En það voru svo TLC sem gerðu út um leikinn undir lokinn með þriðja markinu. Ekki þarf að segja meira um leikinn enda var enginn sem skaraði fram úr og vonandi að þessi leikur gleymist fljótt. |
![]()